Hátíð í Slippnum

Á þrettándanum, 6. janúar 2006, verður efnt til hátíðar í Slippnum í Reykjavík. Skyggnst verður inn í sérkenni og stemmningu þessa sögulega svæðis í hjarta borgarinnar sem brátt tekur stakkaskiptum.

DAGSKRÁ
16:00 Sorterað í Slippnum – Slippabankinn opnaður. Bankinn verður opinn frá 6.- 8. janúar.
18:00 Gunnar Hersveinn flytur erindið "Gildin í borginni - Reykjavík í þremur litum", Sigurbjörg Þrastardóttir les úr eigin verkum, Músíkhvatur leiðir tónaflaum, ofl.

Dagskráin fer fram í Slippnum við Mýrargötu og Guerrilla-Store, sem er til húsa í Slippfélagshúsinu, Mýrargötu. Gengið er inn bakatil. Það verður heitt á könnunni og Sægreifinn og Hamborgarabúllan eru ekki langt undan ef hungrið sverfur að.

Að hátíðinni stendur ÚRBANISTAN í samstarfi við Guerrilla-Store og ýmsa velunnara og heimamenn í Slippnum.

Á meðan á hátíðinni stendur verður hugmyndum og minningum um Slippinn sem og sögum og hlutum úr Slippnum safnað saman og komið fyrir í tímahylki í þartilgerðum Slippabanka: huglæg verðmæti sem hægt verður að leysa út í framtíðinni.
[ newsprojectsaboutblog ]